Föstudagur 02. október 2009 / 20:10 / 34 vikur og 3 dagar
Já þessi meðganga líður alveg rosalega hratt. Ég er svo lánsöm að hafa liðið mjög vel allan tíman en er samt farin að finna fyrir að það er að síga á seinni hlutann, bumban er aðeins farin að taka meira í og maður er frekar þungur á sér, sérstaklega á nóttunni :) Annars þá fer allt að verða tilbúið hérna heima, bara smotteríshlutir eftir sem hægt er að gera smám saman og bílstóllinn á leiðinni suður um helgina. Ég er bara að verða komin í svo mikið jólaskap að ég vil helst bara fara að gera jólaskraut og baka smákökur! -Samt er snjórinn ekki komin hingað suður! Ég er aðeins farin að huga að jólagjöfum þannig að ef það eru einhverjar séróskir þá verða þær að berast tímanlega ;)
---
Daia systir var svo góð að búa til heimasíðu fyrir litla krílið og er ég svona smám saman byrjuð að setja inn efni þar. Reyndar bara smá komið en það mun aukast þegar krílið er komið. Þar er líka tengill á myndasíðuna hjá krílinu, þar eru komnar inn bumbumyndir og sónarmyndir - endilega kíkið:)
Þessi færsla er skráð í flokknum