Fimmtudagur 20. ágúst 2009 / 12:20 / tíminn líður..ójá!
Þar sem ég er búin að vera frekar löt við að skrifa þá verða þetta bara fá blogg en löng þessa dagana
---
Úff þetta sumar er búið að líða áfram eins og stormsveipur... og mér finnst ég búin að missa af því öllu! Veðrið hefur aldrei verið eins gott í borginni og þetta sumar – nánast sól uppá hvern einasta dag og logn! Þessi blanda fer nú ekki oft saman hérna! Mér finnst ég vera búin að vinna sumarið allt af mér, og svo loksins þegar ég var í vaktarfríi þá var Gunnar minn að vinna. Já þetta getur verið snúið. Því erum við ekki búin að gera neitt af viti í sumar, allavegana ekkert af því sem við töluðum um í fyrra að gera „næsta sumar“ hehe. En svona er þetta það verður eitthvað að vera eftir á To-Do listanum:) kannski spurning um að fara að skrifa þetta allt formlega niður á blað til að geta „check-að“ við það sem búið er (Hanna ekki bara það sem er á dagskrá sko- heldur BÚIÐ hehee).
---
Okkur tókst nú samt að skreppa eina helgi norður í bústað fyrstu helgina í júlí og við dróum systkini Gunnars og fjölsk þeirra með. Þurftum nú reyndar ekkert að hafa mikið fyrir því, það var nefnilega stórafmæli í móðurfjölskyldunni, Magga frænka varð 70 ára í vetur og var að halda upp á það þarna. Myndir er hægt að sjá á facebook – (ég ætla samt ekki að láta þann vef alveg taka yfir myndum og bloggi – reyni að halda gamla forminu á lífi áfram:) en eitthvað fer þangað líka)
---
Síðan var Andrea vinkona og Jakob að gifta sig í ágúst og auðvitað þurfti að gæsa skvísuna, jú og steggja drengin. Það var ekki hægt að láta þau sleppa við það. Það var ein heljarinnar gleði sem endaði misjafnlega vel hjá hjúunum – En Jakob má eiga það að hann kláraði kvöldið þrátt fyrir allt. Annars þá fórum við með Andreu í fimleika í Gerplu húsinu, pik-nik í grasagarðinum þar sem við hittum Jakob og fylgdarlið og þar var spurningakeppni á milli hjónana með spurningum sem þau höfðu gert fyrir hvort annað. Síðan fórum við stelpurnar og fengum smá kennslu í kjöltudansi og síðan var sund þar á eftir. Að lokum hittust svo allir heima hjá Andreu og Jakobi í svaka grill-singstar partýi þar sem eftirréttur við hæfi beið bæði gæsinnar og steggsins. Þetta var alveg frábær dagur. Síðan var brúðkaupið sjálft 8.ágúst. Andrea og Jakob voru alveg stórglæsileg eins og við var að búast. Athöfnin í kirkunni var stutt og skemmtileg með frábærum söng frá stelpunum í 3raddir og veislan var frábær í alla staði með góðum mat, skemmtiefni og balli þar sem var dansað og tjúttað fram á nótt. –myndir úr brúðkaupinu er einnig hægt að sjá á facebook.
---
Eins og flestir vita núna þá eigum við Gunnar von á litlu kríli þann 10.nóvember. Það er allt búið að ganga mjög vel. Lítil sem engin ógleði fyrstu mánuðina, reyndar alltaf smá velgja sem stoppaði mig svo sem ekkert í lífi og starfi en síðan er allt bara búið að ganga eins og í sögu. Hreyfingarnar eru alveg komnar á fullt og bumban stækkar óðum. Við fórum í 20.vikna sónar um daginn og þar leit allt vel út og fyrir ykkur forvitnu þá verðið þið að bíða lengur því við vildum ekki fá að vita kynið –en þá er bara að veðja við næsta mann um hvort þetta verði strákur eða stelpa. Tíminn líður samt alveg ótrúlega hratt og mér finnst eiginlega bara pínu sorglegt að það skuli vera farið að síga á seinni hlutann, þetta er nú bara mjög gaman, þrátt fyrir smá brjóstsviða og bakverki! En núna eru komnar rúmar 28 vikur og bara tæpar 12 vikur eftir – svona ef krílið kemur á réttum tíma.
---
Loksins kom samt sumarfríið langþráða. Við ákváðum að bruna beint norður og freista þess að taka sólina með okkur. Það hafðist reyndar ekki, eða hún er allavegana mun lengur á leiðinni en við vorum! Þannig plönin hérna hafa ekki alveg gengið eftir. En þrátt fyrir sólarleysi, ský og smá vind þá fórum við í smá fjallaferð í vikunni. Fengum Hiluxinn hans pabba lánaðann og keyrðum inn í botn á Eyjafirði og alla leið að Laugafelli. Við fórum reyndar ekki í laugina þar en ég pissaði í eitt heitasta klósett sem ég hef pissað í hehe, þar er nefnilega heitt vatn í klósettunum enda nóg af heitu vatni þarna í kring. Af fjallasögunum hans Gunnars að dæma þá vorum við heppin að ekki var margt um manninn þarna og enginn með illt í maga, því oft í fjallaferðum þar sem margir karlar eru saman komnir hefur daunninn verið slíkur að ekki hefur verið fært inn á salernin. Síðan var leiðinni haldið áfram og keyrt inn í Bárðadal og stoppað við Aldeyjafoss og smellt af nokkrum myndum þar. Því miður voru veðurskilirðin ekki eins og ég hefði viljað og því komu fáar montmyndir út úr þeirri ferð, en ég mun setja nokkrar inn á myndasíðuna mína við tækifæri.
---
Annars þá erum við Gunnar bara búin að vera í góðu yfirlæti hérna á Nesinu. Allir bílar orðnir glansandi fínir (karlinn verður jú að hafa eitthvað að gera í fríinu) og bara einu sinni búið að fara í berjamó og eru þau ber löngu komin ofan í maga og áfram. Planið er að fara í berjamó um næstu helgi, svona á milli afmælisveislna og brúðkaups og þá er nú vonandi að „hann hangi þurr“ og ekki væri verra að fá smá sólarglætu til að setja punktinn yfir i-ið hvað varðar gæði berjanna – aðalbláberin klikka nú reyndar sjaldnast.
---
En ég læt þetta gott heita núna komið frekar langt og vonandi búin að bæta upp fyrir bloggleysið í sumar.
Annars þá var ég að setja inn fullt af gömlum myndum af okkur Gunnari inn á nýju myndasíðuna, þar er einnig hægt að sjá bumbumyndir og sónarmyndir.
p.s ég veit ekkert hvort að facebook tenglarnir virki hjá öllum - ef það virkar ekki hjá þeim sem eru ekki með fésbókina þá vitiði bara hvað þið þurfið að gera hehe:)
Þessi færsla er skráð í flokknum