Þriðjudagur 30. júní 2009 / 14:05 / svona fyrir ykkur sem enn lesa blogg en ekki bara facebookið;)

Vikan síðasta fyrir norðan var frábær. Það er alltaf svo gott að komast norður í sæluna:). Veðrið var nú reyndar ekkert að leika við okkur fyrr en síðustu dagana. Á 17.júní var alveg úrhellis rigning en við létum það nú ekkert stoppa okkur í hitting og grill. Við og mamma og pabbi og Sigga og Co ákváðum að hafa smá grill hjá Daiu sys og co og var það hin mesta skemmtun eins og von var á!. Myndir frá grillinu eru hér.
---
Mér tókst að plana hitting með henni Ingibjörgu minni - það reynist oft erfitt sökum vaktavinnu og sýni ég því fullan skilning enda sjálf í vaktavinnu:) Einnig gafst tími til að hitta annað gott og skemmtilegt fólk og það er alltaf jafn gaman:)
---
Á laugardeginum voru svo bíladagar á Akureyri. Þangað mætti Sigursteinn frændi Gunnars á Mustangnum sínum og að sjálfsögðu rústaði hann sínum flokki. Ég er reyndar ekki með tímatölurnar á hreinu - læt Gunnar um allt slíkt. Reyndar höfðu strákarnir (Gunnar og frændur) eytt öllum þriðjudeginum í að þrífa og bóna alveg fullt af bílum fyrir bílasýninguna á 17.júní og fengu þeir verðlaun fyrir vel unnið verk - að sjálfsögðu:)
---
Þessi vika var allllltof fljót að líða og fyrr en varði var komið að suðurferð með tilheyrandi vinnutörn - helgin fór því í að sofa á daginn og vinna á nóttunni! - sólarhringurinn er alveg að komast aftur á rétt ról hjá mér. Síðan er það bara vinna út þessa viku og skella sér síðan aftur norður næstu helgi. Já það er sjaldan dauður tími hjá okkur:) Við fengum bústað í Varmahlíð yfir helgina og ætlum því að troðfylla hann af fólki sem er að fara - ásamt okkur - í stórafmæli lengst inn í Skagafjörðinn - Nú treystum við sko á gott veður:).
---
Annars þá er komið vinnuplan út júlí og hluta af ágúst og ég sé fram á að júlí verði fljótur að líða og því styttist óðum í síðari hluta sumarfrís:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Berglind Rut:

sorry alveg buin ad gleyma thessari sidu, svona er facebook :)
myndirnar af ther eru aedislegar, og greinilegt ad ther lidur vel . og mer list vel a ad thu farir ad fara i sma fri eftir mikla vinnu og vaktavinnu torn.
best wishes from Brooklyn
Berglind

21.07.09 23:27


© 2001-2007 Dagny Reykjalin