Laugardagur 13. júní 2009 / 13:10 / fyrri hluti sumarfrísins kominn

jæja þá er ég komin í smá sumarfrí núna. Ákvað að taka mér viku í júní bara svona rétt til að kúpla mig út úr vinnunni og hlaða batteríin. Það er búið að vera meira en nóg að gera í vinnunni og mikið af veikum einstaklingum sem þurfa mikla hjúkrun. Restina af sumarfríinu ætla ég síðan að taka í ágúst eftir brúðkaupið þeirra Andreu og Jakobs, og þá ætlum við hjúin að reyna að skella okkur í smá road-trip um landið. Mig langar helst til að fara aftur austur. Fékk bara greinilega ekki nóg af þessum stað þegar ég bjó þarna sumarið 2007. Það er bara svo fallegt þarna og kyrrðin svo yndisleg. Ég vissi fátt betra en að taka rúnt upp á Oddskarðið og njóta útsýnisins eða keyra inn í Helgustaðahrepp og rölta í átt að Silfurbergsnámunum og setjast þar niður í grasið og horfa á fjörðinn, svo dásamlegt. Ohh ég fæ alveg gæsahúð við tilhugsunina. Þrátt fyrir að Eyjafjörðurinn sé, að sjálfsögðu, fallegasti fjörðurinn:) þá fannast mér ég komast í meiri snertingu við náttúruna fyrir austan, það var svo stutt að fara allt - bara nokkur skref og þá var ég komin upp í fjall:) Ég sakna þess héðan úr borginni. Maður þarf alltaf að hafa meira fyrir hlutunum hérna, eða þá að ég kann ekki réttu leiðirnar. Ég tek reyndar stundum rúnt á Álftanesið og sest þar í fjöruna - það er svona það sem kemst næst þessu hérna, en enganvegin það sama.
---
Annar sá ætlum við að skreppa norðu núna (og auðvitað í ágúst). Veit ekki alveg nákvæmlega hvenær við förum norður, það er svo gífurlegur bílaáhugi í þessari fjölskyldu og það er kvartmíluhelgi núna þannig að líf mitt stjórnast þessa helgina af kraftmiklum bílum hehehee. Ég neita því ekki að það er alveg gaman að hlusta á vélarhljóðin (bammbammbammmbammmmm) og finna kraftinn - en allt í hófi að sjálfsögðu:). Leyfi Gunnari bara að sjá um þetta að mestu;)
---
Ef einhver þarna fyrir norðan hefur áhuga á að skella sér í Ásbyrgi eins og í einn daga eða yfir eina nótt í næstu viku þá megiði alveg vera í bandi, okkur Gunnari langar að kíkja þangað. Ég hef ekki farið þangað síðan í skólaferðalagi einhverntíman fyrir laaaaaanga löngu. Ég treysti bara á að það verði gott veður, sendi öll ský og úrkomu í burtu með hugarorkunni og secretera sólina til okkar:)
---
Við verðum með einn loppuling með okkur norður. Hún Píla litla (já hún er enn á lífi:) fékk borgarleyfi og kom suður með Hönnu systir á fimmtudaginn og fór í yfirhalningu hjá dýralækni hér í borg í gær. Ég sótti hana á Voffaborg til Hönnu og skutlaði henni til doksa snemma morguns og sótti hana svo seinnipartinn. Hún stóð sig eins og hetja og lækninum leist vel á hana þrátt fyrir nokkur ellimerki sem fylgir víst ellinni:) En okkur var tjáð að hún gæti átt alveg góð 5 ár í viðbót þessi elska - þá nær hún kannski að verða 20 ára í mannsárum, en meðalaldur íslenska fjárhundsins eru 12 ár og hún komin vel yfir það. Hún er svo mikið krútt:)
---
Vona að við náum að hitta sem flesta þarna fyrir norðan:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2007 Dagny Reykjalin