Miðvikudagur 13. maí 2009 / 13:54 / áfram ísland

ísland áfram í eurovision en ekki hvað!!!
Mafíugengið hittist hjá Erlu og Dóra í gær og við horfðum á júró og borðuðum geggjaðan mat. Auðvitað voru lögin og flytjendur gagnrýndir út í hið ýtrasta en það er bara það sem fylgir og gerir þetta skemmtilegt. Þegar kom að því að tilkynna hverjir kæmust áfram var spennan orðin gríðarleg, undir lokinn gugnaði Gréta undan spennunni og fór í rokið úti á svölum en síðan kom hún inn þegar hún heyrði fagnaðarópin í okkur hinum þegar íslenski fáninn kom úr umslaginu. Úff það átti aldeilis að taka mann á taugum þarna. Ég held að allur tilfinningarússíbaninn hafi verið búinn að sýna sig hjá öllum með tilheyrandi gæsahúð og ófaguryrðum:)

Takk fyrir frábært kvöld allir og sjáumst hress á laugardaginn í hinni víðfrægu júróvísjóngleði í Víðilundinum. Set hérna eina mynd með til að rifja upp stemmningu síðasta árs:)

IMG_0635.JPG
ég og Erla með gula hanskann:)


IMG_0663.JPG
Gréta og Dóri í góðum fíling


IMG_0664.JPG
Dóri og Jóhannes alltaf hressir.


IMG_0665.JPG
Gunnar, Dóri og Gréta í þvílíka dansstuðinu:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

hanna sys:

Hahahahaha! Þvílíkar snilldar myndir! Guli hanskinn er náttúrulega flottastur hahahaha

15.05.09 17:02


© 2001-2007 Dagny Reykjalin