Þriðjudagur 14. apríl 2009 / 01:32 / alltaf brjálað að gera?!

jæja við hjúin erum búin að koma okkur vel fyrir í nýju íbúðinni. Við erum búin að fá nokkra kassa að norðan með allskyns dóti og heimilisáhöldum og er íbúðin því orðin hin heimilislegasta:) Ég er búin að fá mér nokkur pottablóm til að lífga uppá og er þetta því allt í áttina. Síðan kom Þorsteinn Ingi og kærastan hans um daginn og er því heimilishaldið að verða allt hið líflegasta.
---
Mér finnst eins og það sé búin að vera rosa mikið að gera hjá okkur í marsmánuði og það sem af er apríl. Við erum búin að fara eina norðurferð í afmæli og ná í dót. Síðan skrapp ég í sveitina til Ragga bróðir yfir eina helgi og sá um barn og bú meðan húsfreyjan skrapp til Svíþjóðar. Ég er búin að taka óvenju mikið af næturvöktum sökum anna í vinnunni og því búin að sofa af mér aðra daga. Hef því lítið sem ekkert hitt vini og ættingja. Var líka svo heppin að vera á næturvöktum alla afmælishelgina mína þannig að ég svaf þetta afmæli mestmegnis af mér og sá varla neinn, þannig að ég tel þennan dag bara ekkert með og er því bara enn 28 ára:) En ég vil samt þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar sama hvaða leið þær bárust:)
---
Vorið er alveg á næsta leyti hérna á suðvesturhorninu og þá styttist í að ég og Gréta mágkona stingum upp matjurtargarðinn í Víðilundinun og gerum aðra tilraun til ræktunar. Það verða gerðar nokkrar betrumbætur frá því í fyrra, nýtt skipulag og nýjar plöntur að einhverju leyti. Ohh vorið er svo yndislegt:)
ég kveð þá á vornótunum
bleeeee....


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2007 Dagny Reykjalin