Laugardagur 07. mars 2009 / 05:02 / góðir hlutir gerast.....tjah stundum hratt:)

Ég og Gunnar erum búin að vera að horfa í kringum okkur eftir íbúð eins og ég var búin að minnast á. Við vorum nú ekkert að flýta okkur neitt en duttum niður á þessa líka svaka fínu íbúð hérna í Garðabænum og bara gátum ekki látið hana renna okkur úr greipum. Þannig að við skelltum á íbúðina og viti menn hún var bara laus strax!! það kemur sér vel fyrir óþolinmóða manneskju eins og mig:) Við fengum því lyklana á fimmtudaginn og byrjuðum þá strax að bera dót inn, ég var sko búin að pakka niður slatta af dótinu á meðan við biðum eftir að bankinn græjaði bankaábyrgðina. En vá hvað ég á eftir að sakna Grétu, Jóhannesar og Glanna, þau eru búin að vera svo yndisleg, ég neita að skila lyklunum! við eigum sko pottþétt eftir að vera heimalingar þarna hjá þeim enda ekki langt að fara:)
Síðan keyptum við okkur sófasett í Ego dekor í gær og fáum það í hádeginu í dag:) Ég bara get ekki beðið. Síðan voru mamma og pabbi svo góð að taka með sér nokkra kassa sem ég átti heima á Nesi, og fóru með þá til bróa og Söndru. Ég og Gunnar ætlum síðan að gera okkur ferð þangað (líklegast í dag, þegar ég vakna eftir næturvaktina!) og sækja þetta dót.
Það verður svo gaman að taka upp dótið mitt og sjá hvað ég á!! ég bara man ekkert hvað er í þessum kössum í bílskúrnum heima á Nesi, þetta verður sko forvitnilegt:)
---
Vil líka láta ykkur vita að það er auka herbergi og það verður rúm þar inni þannig að hótel Reykjalín opnar von bráðar:)
kv baddý og gunnar í nýja kotinu:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Jakobar:

Til hamingju með íbúiðina, hlakka til að kíkja á ykkur. Tek verðandi konuna mína líklega með ;) Bjalliði síðan ef ykkur vanntar hjálp við að bera kassa, Andrea er mjög sterk!

07.03.09 21:31


baddy:

darn...sá þetta komment aðeins of seint! kassarnir komnir upp! :)

En já ég býð öllum sem vilja koma í pönsukaffi þegar ég er búin að fá pönnukökupönnuna og kaupa instant kaffi;)
annars þá erum við komin með heimasíma fyrir þá sem vilja nýta sér "frítt í alla heimasíma" díla hjá símafyrirtækjum:)
S: 466-1296

10.03.09 16:58


Bobby:

stórfínt, voruð þið að versla ykkur steypu eða leigja.
Hvar í garðabænum búiði þá? aldrei að vita nema ég kiki við einhverntíma, M&P búa sko í grb svo ég gisti þar nánast alltaf þegar ég er á svæðinu
Gangi ykkur vel að koma ykkur fyrir
heyrumst

13.03.09 11:36


baddy:

Við vorum að leigja okkur, það er ekkert vit í steypukaupum þessa dagana! Þetta er í Hrísmóum 8 - fyrir aftan garðatorg:)

14.03.09 15:26


© 2001-2007 Dagny Reykjalin