Miðvikudagur 25. febrúar 2009 / 11:07 / ekki alveg hætt:)
nei ég er ekki alveg hætt að blogga þótt það líti út fyrir það!! bara talsverð bloggleti búin að vera. Við hjúin erum svo sem ekkert búin að sitja auðum höndum síðasta mánuðinn. í lok janúar skelltum við okkur í sumarbústað í Varmahlíð, buðum Grétu og Jóhannesi með okkur þangað og síðan komu strákarnir hennar Grétu í mat til okkar á laugardeginum og það var mjög kósý stemmning hjá okkur. Bústaðurinn var alíka alveg meiriháttar, og potturinn geggjaður, með nuddi og alles. Næst er það bara að fara með minni fjölskyldu þangað:) (hint, hint) áður en við brunuðum aftur suður skruppum við á Krókinn að heimsækja ömmu Gunnars, sem minnti mig pínu á Huldu ömmu og kíktum í skagfirðingabúð sem er núna án efa ein af mínum uppáhaldsbúðum, það bara fæst allt þarna allt frá matvöru í hannyrðadót og heimilistæki. Þetta er svona ekta kaupfélagsbúð sem selur allt. Svona búðir eru því miður að deyja út hérna, algjör synd!
---
Í byrjun febrúar var hið árlega þorrablót í Árskógi. Skemmtiatriðin alveg frábær sem og annállinn og maturinn alveg dýrlegur. Hákarlinn ekkert smá góður og hvítvínið sem rann aðeins of ljúflega niður! en allir skemmtu sér vel að ég held. Það var líka svo gott að komast heim á Hauganes í smá stund. Alltaf svo notalegt að vera þar:)
---
Hin árlega þorrablóts-jeppaferð hjá Gunnari og félögum var um síðustu helgi. Gunnar, Viðar og frændur fóru Langjökulsleiðina í Skagafjörðinn og hittu þar einhverja jeppavini sína og síðan fóru þeir í Skiptabakkaskála og borðuðu þorramat og gistu. Það var víst minni snjór á hálendinu en þeir höfðu vonað og vatnselgurinn meiri en þykir gott! ég hef svo sem ekkert vit á þessu!! En þetta þykja skemmtilegar ferðir:) Þegar við Gunnar eignumst jeppa þá fæ ég kannski að koma með í einhverja jeppaferð hehehe.
---
Annars þá erum við Gunnar að farin að hugsa okkur til hreyfings svona með vordögum. Við erum aðeins farin að horfa eftir leiguíbúðum hérna í nágrenninu (gbr, kóp, álftanes). Framboðið er reyndar ekki eins mikið og ég bjóst við en það kannski kemur með vorinu líka:) Mig langar svo sem ekkert að flytja frá Grétu og Jóhannesi, þau eru svo yndisleg, en dótið okkar (mitt) er farið að kvarta undan plássleysi og síðan er ég að verða mjög forvitin að vita hvað ég á í kössunum í bílskúrnum heima. Mér skilst að megnið af dótinu þar sé mitt eða hönnu sys. Ég veit líka að mamma er búin að bíða eftir að við hreinsum til þarna svo hún geti farið að skipuleggja betur:) hún er búin að vera svo þolinmóð:) En ef þið þekkið einhvern sem vantar góða leigjendur af sætri íbúð þá endilega mælið með okkur:)
---
já ég er byrjuð í ræktinni! ég er skikkuð til að mæta í ræktina 2x í viku í heilt ár annars verða tæpar 6þús krónur dregnar af laununum mínum þann mánuð sem ég stenst þetta ekki!. World Class bauð starfsmönnum LSH upp á þetta tilboð. Ég ákvað að þetta væri mitt spark í rassinn til að fara að hreyfa mig. Ég er búin að vera nokkuð dugleg þennan mánuðinn sko og vona bara að ég haldi því áfram.
---
Ég er búin að vera alveg hannyrða-óð. Ég er búin að gera nokkrar handhægar jólagjafir (aldrei of seint að byrja!) og síðan er ég líka byrjuð á prjónaskapnum. Ég ætla að nýta mér það að hafa Grétu hérna til að leiðbeina mér með það sem ég er ekki viss með. Það er líka svo gott að hafa einhverja handavinnu á næturvöktunum. Hver veit nema ég fái fleiri skemmtilegar jólagjafahugmyndir:) Nú þarf ég bara að stofna saumaklúbb einhverjir memm?:)
---
Að lokum vil ég óska afmælisbörnum febrúarmánaðar innilega til hamingju með daginn. Mér láðist að senda sumum afmæliskveðju á réttum tíma en var mjög dugleg að senda hugskeyti bæði fyrir afmælisdaginn og eftir:s Ellý og Karó vinkona eiga báðar afmæli 4.febrúar, til hamingju með daginn stelpur. Síðan vil ég sérstaklega óska Söndru mágkonu og Kalla frænda í mývó til hamingju með afmælin þeirra, vona að hugskeytin hafi skilað sér:)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Helga:
Ég skal vera memm í saumó...
26.02.09 20:22
snilld:), kannski fáum við líka einhverja af snyrtipinnunum með okkur í klúbbinn;)
27.02.09 12:14
Hildur Lind:
Hæhæ.. :) Gaman að lesa loksins eitthvað frá ykkur!! En þekki þessa bloggleti sossum alveg hehe.. :)
Kíki alltaf reglulega hérna inn til að sjá hvort það séu einhverjar fréttir að heiman. Annars hlökkum við bara til að hitta ykkur eftir rúman mánuð!! :)
01.03.09 06:36