Föstudagur 02. janúar 2009 / 17:47 / Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Gleðileg jól og farsælt komandi ár kæra fjölskylda og vinir.
DSC_0482.JPG

jújú það er komið 2009!! vá hvað tíminn líður hratt. Jólin og áramótin voru yndisleg! Ég og Gunnar minn flugum beint norður eftir næturvaktina hjá mér, ég var frekar þreytt en lét mig hafa það enda mjög spennt að komast norður í smá tíma. Þar sem það er hefð hjá okkur í Ásveginum að skreyta jólatréð á þorláksmessu þá skruppum við Gunnar heim á nes seinnipart dags og skreyttum tréð með Hönnu sys og Inga. Hann Gunnar minn var svo yndislegur að gefa mér smá morgungjöf á aðfangadagsmorgun - ég gæti nú alveg vanist því að fá eina gjöf svona í morgunsárið þannig að vonandi verður það að jólahefð hjá okkur:) Hann gaf mér svuntu úr Kokku og náttföt. Honum fannst ég taka mig svo vel út með svuntuna hennar Grétu í jólabakstrinum þannig að honum fannst ég þurfa að eiga mína eigin....ætli hann sé ekki bara að tryggja það að hann fái reglulega bakkelsi og góðgæti:).
---
Á aðfangadagskvöld var Gunnar hjá mömmu sinni ásamt frændum sínum en ég heima á nesi með mömmu, pabba, Hönnu sys, Inga og Össa frænda - ég gat sko ekki fórnað rjúpum fyrir svín - það kom ekki til greina. Reyndar hafði svefnleysið eftir næturvaktina einhver leiðinda áhrif á mig og einnig kvefið sem ég nældi mér í þannig að ég svaf nánast frá hádegi fram að kvöldmat! Bragðlaukarnir voru heldur ekki upp á sitt besta sökum kvefsins en góð var rjúpan samt sem áður, enda gerir mamma bestu rjúpurnar og rjúpnasósuna... nammmi nammmmm....
---
Síðan var ráðist á pakkana. merkilegt hvað það er alltaf gaman að fá pakka, það breytist seint:) Við Gunnar fengum fullt af nytsamlegum gjöfum og nú vantar bara íbúðina til að fara að raða inn. Mamma náði greinilega hintinu mínu hérna á netinu því þau gáfu okkur Grand Cru karöflu og glös og Daia og co fleiri glös í stíl. Einnig fengum við vínglös í stíl frá Helgu vinkonu og líka Grétu og Jóhannesi. Við fengum skálar og mjög fallegt George Jensen jólaskraut frá fólkinu mínu í Mývó, síðan fengum við nokkra íslenska jólasveina, bækur og fullt fleira og þakka ég öllum kærlega fyrir okkur. Já og Hanna systir gaf okkur jólaglös sem ég var búin að finna í lítilli búð á Skólavörðustíg. Þetta var allt alveg dásamleg og svo gaman:). Gunnar gaf mér síðan the north face úlpu og 66°N húfu og flís nærföt, þannig að núna verður mér sko ekki kalt. Ég gaf Gunnari rosalega flott úr og andlitskrem. já allt svo dásamlegt:)
---
Eins og svo oft áður þá fóru þessi jól í það að borða og liggja í leti. Get ekki sagt að ég hafi afrekað mikið - kláraði ekki einu sinni eina bók!!!
En samkvæmt hefðinni hittust systkyni mömmu og fjölskyldur á ættaróðalinu Karlsá á annan í jólum. Það klikkar sko aldrei - alltaf jafn mikið fjör þar. Fengum alveg dásamlegt veður og meðan konur og börn léku sé úti í þeim litla snjó sem eftir var sátu karlarnir inni og horfðu á enska boltan, ég held að Gunnar minni hafi náð alveg þrem leikjum þennan dag:) og auðvitað unni Liverpool menn glæstan sigur þann daginn:).
---
Við fórum aftur suður 29.des því ég þurfti að mæta á kvöldvakt þann daginn. Kvöldið 30.des ákváðum við að grilla úti sökum góðs veðurs. Já það var ekki að sjá að það væri miður vetur. Gunnar var úti á stuttermabol að grilla í 5 stiga hita og allt autt.
DSC_0441.JPG

Síðan var ég aftur á kvöldvakt á gamlárskvöld og ég rétt náði heim í Garðabæ fyrir miðnættið. Þá voru Gunnar og frændur tilbúnir með nokkur víti og kökur til að sprengja - mér skilst að þetta hafi nú ekki verið eins mikið og undanfarin ár - sökum þjóðarkreppu! En upp fór þetta og ég náði að smella af örfáum myndum. Á nýársdag var matarboð hérna - Viðar bróðir Gunnars og Grétu kom með sína fjölskyldu. Gréta stóð sig eins og hetja í eldhúsinu og töfraði fram dýrindis humarsúpu í forrét, íslenskt lambalæri í aðalrétt og ís og döðluköku í eftirrétt. Það voru sko útblásnir belgir sem fóru að sofa þá um kvöldið...úffff.
---
Í morgun þegar ég vaknaði (eða réttara sagt rétt fyrir hádegi) þá fannst mér þetta alveg vera komið gott af leti og fór út að skokka í um 20 mín...jiminn hvað það var notarlegt. - héreftir verður bara fiskur og skyr í matinn á þessum bæ - kannski kjöt um helgar:)
---
Enn og aftur gleðileg jól og hafið það rosalega gott á nýja árinu. Takk kærlega fyrir okkur um jólin hvort sem það var hittingur eða jólagjafir - þetta var allt yndislegt.
-jólamyndirnar eru alveg að komast á netið:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Hanna:

Takk sömuleiðis systir góð og hlakka til að sjá ykkur þegar ég kem suður! :)

04.01.09 17:07


baddy:

já sömuleiðis systir kær, hvernig væri nú að hafa spilakvöld næst þegar ingi er í landi og bjóða munda bro og svanhildi??

04.01.09 19:21


Eva Bjök:

Gleðilegt nýtt ár skvísa. Við verðum svo að hafa hjúkkuhitting sem fyrsta hérna sunnan heiða fyrir þær sem eru hér;0)

04.01.09 21:12


baddy:

játs.. ég var einmitt að ræða þetta við andreu í gær. einhver tími sem hentar þér vel?:)

06.01.09 11:07


Eva Björk:

Nei nei, bara finna einhvern tíma;0)

09.01.09 13:41


© 2001-2007 Dagny Reykjalin