Miðvikudagur 17. desember 2008 / 11:06 / jólin koma jólin, koma brátt....
Jæja nú styttist óðfluga í jólin. Ég er búin að pakka inn pökkunum, taka frá þá sem fara til vina og ættingja hérna fyrir sunnan og senda norður þá sem eiga að fara þangað. Ég er ekki búin að vera öflug í jólakortaskriftum, er bara ekki viss hverjum ég á að skrifa kort þannig að ég læt þau bara bíða enn ein jólin en tek mig á á næsta ári:)
---
Við skötuhjúin ásamt sambýlendum skelltum okkur á tvenna jólatónleika um helgina. Fórum fyrst á Frostrósartónleikana í Laugardalshöllinni. Það voru alveg frábærir tónleikar og mikið um gæsahúð og allir söngvararnir alveg stórkostlegir, við göptum nær allan tímann. Alveg stórkostlegt og góð tilbreyting svona á aðventunni. Þegar við komum heim um kvöldið þá var ég í svo miklu jólaskapi að ég hnoðaði í þriðju umferð af spesíum og tók til í súkkulaðibitaköku og síðan var þetta allt bakað á sunnudeginum. Um kvöldið fórum við síðan á aðventutónleika hjá Karlakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju. Það voru líka góðir tónleikar, helst til í rólega kanntinum en samt alltaf svo gaman að heyra fólk syngja!
---
Á sunnudaginn var síðan Emil litli frændi skírður. Við komumst því miður ekki norður fyrir það þannig að ég er bæði búin að missa af skírninni hjá Emil og Danna!!! en já Pabbi (og Raggi bróðir) fengu nafna:) Allir voru búnir að frétta af Emilsnafninu en það var ss bætt við það Ragnar Reykjalín ss Emil Ragnar Reykjalín. Hjómar mjög vel:)
---
jæja við Gunnar erum búin að ákveða að fljúga norður fyrir jólin. Við vorum búin að velta þessu fyrir okkur fram og til baka og vorum eiginlega búin að ákveða að keyra bara á þorláksmessu því það er svo dýrt að fljúga en þá fengum við fyrirframjóla- og takk fyrir hjálpina gjöf sem kom sér afar vel. Gunnar er búinn að vera svo duglegur að hjálpa bróðir sínum og mágkonu við flutninga og breytingar í nýja húsinu þannig að þau gáfu okkur gjafabréf í flug innanlands. Ekki slæmt það og erum við svo himinsæl með það. Þannig að við fljúgum norður eftir næturvaktina mína á þorláksmessu (ég legg mig bara um jólin:)) og verðum alveg til 29.des, þá fljúgum við um morguninn og ég mæti síðan beint á kvöldvakt. Já ekki dónalegt þetta jólafrí mitt:)
Í staðinn fyrir svona langt og æðislegt jólafrí þá ákvað ég að vinna kvöldvakt á gamárskvöld í staðinn, ég næ vonandi heim fyrir flugeldasýninguna kl 24. Við Gréta erum síðan búnar að ákveða að hafa líka veislumat á nýársdag - svo ég fái ekki bara sjúkrahúsveislumat þessi áramótin:)
---
jæja ég læt þetta gott heita úr borginni í bili. Ég er í fríi í vinnunni í dag en síðan verð ég að vinna alla daga fram á þorláksmessmorgun - ss morgunvakt/næturvakt á mánudaginn - bara fjör:) ég vona síðan bara að fólk fari varlega fyrir og yfir hátíðirnar - ég held að það sé ekkert gaman að vera inniliggjandi á sjúkrahúsi þá. Reyndar er geggjað útsýni yfir Reykjavík úr Fossvoginum þannig að enginn verður svikinn með flugeldasýningu þar:)
Þessi færsla er skráð í flokknum