Föstudagur 14. nóvember 2008 / 13:59 / löt
æi hvað ég er eitthvað löt við að skrifa hérna. Það hefur ekki mikið gerst sem er áhugavert í frásögn. Nema kannski að ég og Gunnar skruppum norður um daginn. Það er alltaf svo ljúft að komast norður. Við hittum ættingja og vini, tjilluðum og borðuðum góðan mat. En það er samt alltaf svo leiðinlegt hvað tíminn líður hratt og maður nær aldrei að hitta alla þá sem manni langar að hitta - þið verðið bara að fyrirgefa það stelpur! En vonandi verður hittingur um jólin því mér skilst að það séu kannski tvær stelpur að koma heim frá útlöndum (Gunna og Berglind, vííí) - þá verðum við að halda smá strandargleði. Ég fæ nefnilega ágætis jólafrí - verð í fríi um jólin og alla helgina eftir jólin en þarf síðan að vinna eitthvað um áramótin en það er nú allt í lagi fyrst ég kemst heim um jólin - það er alveg möst. Annars þá ætlum við Gunnar að fara aftur norður næstu helgi en þá er laufabrauðsgerð hjá familíunni, Gunnari finnst það ekkert svo spennandi hehe, ég held að hann ætli bara að bílabrasast eitthvað í staðinn.
----
Vinnan gengur sinn vanagang, það minnkar ekkert í kreppunni, jú fólk heldur víst áfram að þurfa að fara í aðgerðir og slíkt þannig að ég held ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að missa vinnuna. Það gengur svona sæmilega í vinnunni hjá Gunnari. Þeir eru reyndar aðeins farnir að finna fyrir kreppunni því það er ekki alveg forgangsverkefni hjá fólki að fara með bílinn í smur og slíkt. Ég vona bara svo heitt og innilega að þetta ástand fari að lagast. Finnst þetta svo sorgleg staða fyrir alla og heftandi. Síðan er ég líka að verða þreytt á að hlusta alltaf á þetta í fréttunum. Ég vil að það fari að koma eitthvað plan og að þeir sem voru með milljónir í laun fari að taka einhverja af þeirri ábyrgð sem það var að fá borgað fyrir - þessir menn virtust allir hafa bara lagst í dvala!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Þorsteinn Ingi:
heyrðu gamla ég er buin að finna síman þinn:)
18.11.08 23:14
Ellý:
Hvernig líst þér á matarboð hjá mér á næstunni? Hvenær á gellan frí næst?
23.11.08 13:03
Ellý:
Ok, langar þá að bjóða ykkur í mat á fimmtudaginn, hentar það? Skiptir annars ekki máli mín vegna, erum laus alla þessa daga.
24.11.08 15:27
Hildur Lind:
Hæhæ :)
Vá hvað ég kannast við þetta kuldaskræfu komment hihihi.. ;) Elmar er alveg eins, með innbyggðan ofn!!
En já, heimilisfangið á síðunni er rétt þannig þið getið sent á það. Þið lofið bara að vera ekki að hafa mikið fyrir þessu þar sem við munum ekki taka mikinn þátt í pakkaflóðinu þetta árið.. :(
En annars þá skal ég reyna að vinna í því að senda þér pínu sólarglætu svo þú getir hvílt ullarsokkana af og til.. ;)
24.11.08 23:10



