Laugardagur 25. október 2008 / 13:24 / haustið er komið með allri sinni dýrð?
Það er greinilegt að haustið er komið því allir þættirnir "mínir" eru byrjaðir aftur. Það skrítnasta við þetta allt er að vera ekki að fara í skólann og hitta stelpurnar og slúðra um þættina og einkalífið og auðvitað ræða námið. Já ég sakna hjúkkulinganna minna og það er eiginlega þörf á hittingi fljótlega. Það jákvæða við þetta allt saman er að nú finnst mér ég geta notið jólaundirbúningsins. já ég veit ég er enn að hugsa um jólin, loksins get ég farið að jólastússast en ekki hafa áhyggjur af prófum. Það er alltaf að bætast meira og meira í jólahugmyndabankann en síðan er bara spurning hversu mikið kemst í framkvæmd. Dagarnir eru bara svo fljótir að líða þannig að mér finnst ég ekkert of snemma í þessu.
---
Það er líka ágætt að hafa eitthvað annað að hugsa um en þessa svokallaða kreppu. Það er nauðsynlegt að dreifa huganum aðeins, það er held ég ekki mikið sem almenningur getur gert eins og er. Ég skil t.d ekki tilganginn með því að vera að mótmæla ríkisstjórninni. Það þarf bara að gefa þessu smá tíma og leysa úr vandanum og síðan má krefjast þess að ríkisstjórnin og seðlabankastjóri segi af sér - þangað til má leyfa þessum mönnum að vinna fyrir þessari ábyrgð sem launin þeirra standa fyrir - og það á nú líka við um fyrrum bankastjóra - segjast þurfa há laun út af mikilli ábyrgð og síðan eru þeir fyrsti til að yfirgefa sökkvandi skip!!
Þetta góðæri var komið aðeins úr böndunum og ég held að við höfum gott af smá skell en þessi var nú kannski í stærri kanntinum!!
---
En við erum búin að undirbúa okkur aðeins fyrir þessa kreppu ef svo má kalla. Frystikistan er stútfull af heimaslátruðu lambakjöti, slátri, nýlagaðri sviðasultu og hinn ísskápurinn er fullur af heimaræktuðum kartöflum og heimatilbúnni sultu, hinar ýmsu gerðir. Í gær eldaði ég hjörtu handa liðinu, ekkert smá gott og ódýrt, pokinn kostaði 372kr það nær ekki 100 kr á mann! já maður má ekki missa sig alveg í vonleysinu og líta á þetta sem áskorun, það gerum við.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Ég er sammála öllu sem þú segir, það er ekkert víst að ríkisstjórnin sé alslæm, þeir horfðu örugglega bara viljandi framhjá þessu útaf gríðarlegum tekjum sem ríkið hafði af bönkunum, og þó dabbi sé dáltið crazy þá hefur hann nú smá reynslu í þessum málum og líklegast bestur í að leysa þau. Það má stokka þetta lið upp þegar kemur að næstu kosningum.
Hjörtun eru góð, þó manni finnist pínu rangt að borða þau ... ég geri það samt með bestu lyst :) - Í kreppunni hjá mér þá baka ég pizzur og steiki sjálfur hamborgarana í staðinn fyrir að fara í sjoppuna... ;)
29.10.08 13:38



