Föstudagur 12. september 2008 / 08:02 / hugað að framtíðinni

Ég er vöknuð svona snemma því ég mætti í vinnuna í morgun kl 7:30 bara til að komast að því að ég átti ekkert að vera að vinna - ég var víst búin að vinna af mér en það fór eitthvað framhjá mér!! hehe anyways...
---
Ég og Gunnar erum formlega byrjuð að safna í búið okkar. Við ákváðum að það væri ekki svo vitlaust að byrja að safna þrátt fyrir að íbúðin sé ekki komin - þá er bara minna að kaupa þegar við flytjum loksins í okkar íbúð, hvenær sem það verður. Við ætlum ss að byrja að safna okkur glösum og borðbúnaði frá GrandCru (Rosendahl). Okkur finnst vínglösin þar svo flott og einnig hvíti borðbúnaðurinn. Í gær keyptum við því fjögur bjórglös og fjögur koníaksglös (það var sko afsláttur í Mirale). Við hefðum keypt vínglös líka en þau voru búin. Það eru tvær gerðir af vínglösum í þessari línu - ein sem er með mjóum vínglösum og önnur sem er með breiðum kúluglösum - okkur líst betur á kúluglösin, þau er eins og það komist meira í þau hehehehe.
Ég sá reyndar líka sófa í gær sem mig langar í en Gunnari finnst það aðeins of snemmt - skil ekkert í honum!!!! hehe
---
Annars þá er ég byrjuð í jólainnkaupunum.. ég keypti fyrstu jólagjöfina á miðvikudaginn, ekki seinna vænna að fara að byrja sko! hehe. Eitthvað verður maður að finna sér til dundurs þegar maður er ekki í skóla!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

mamma:

Já já maður skilur, farin að safna í búið og fer svo að tala um jólagjafir ;)
he he he

12.09.08 19:58


Helga:

Kræst kona! Jólagjafir??!!
Ertu semsagt að fíla að vera ekki fátæki námsmaðurinn lengur ;)

13.09.08 01:00


baddy:

Mamma: já þessu var beint til þín;)
Helga: já og ég er að reyna að vera pínu séð í þessum málum og fá ekki bara einn feitan vísareikning í febrúar - betra að dreifa þessu bara um lengri tíma;)

13.09.08 18:08


© 2001-2007 Dagny Reykjalin