Miðvikudagur 06. ágúst 2008 / 20:29 / allt og ekkert og eitt brúðkaup
jæja já þetta sumar líður jafn hratt og öll hin sumurin. Alltaf nóg að gera í vinnunni. Alveg ótrúlegt hversu margir eru með krabbamein einhversstaðar á hálsi eða í andliti, þá oftast í einhverjum kirtlum eða góm eða því um líkt.. ojbjakk. Einnig kemur fyrir að einhverjir fái cancer á milli tása og þá getur þurft að fjarlægja tásu og meira vesen getur fylgt því. Því mæli ég með því að þið kíkið öll á iljarnar á ykkur og á milli tásanna og skoðið hvort þið séuð með einhverja fæðingabletti þar sem vert er að láta fylgjast með reglulega. Getur verið lúmskt! Annars þá er þetta allt mjög lærdómsríkt og gefur manni nýja sýn á lífið - er eiginlega bara meira lífhrædd ef eitthvað er:s
---
Ég og karlinn ásamt familíu og fleiri gestum fórum í eitt af skemmtilegri brúðkaupum sem ég hef farið í um ævina. Mundi bróðir og Svanhildur giftu sig í Grundakirkju í Eyjafirði þann 19. júlí síðastliðinn. Þar var alveg hörku stuð. Veðrið betra en hægt var að óska sér, maturinn yndislegur og snilldar partý á eftir. Þetta var alveg stórskemmtilegt og yndisleg helgi, já þetta var sko ekkert bara einn dagur heldur heil helgi nánast. Öllu var tjaldað til - svona eiginlega bókstaflega hehe - en tjaldstæðið var fullt af tjöldum, fellihýsum, tjaldvögnum og húsbílum og þar sváfu flestir gestana um nóttina, eða allavegana eftir að fylleríssöngnum lauk um kl hálf 6 um morguninn - já ég held að brúðhjónin hafi staðið sig best þar:) Já og síðast en ekki síst þá greyp ég brúðarvöndinn... jújú dá kerlu:)
---
Annars er allt gott að frétta af okkur skötuhjúunum í litla herberginu okkar í Víðilundinum. Veðrið er búið að vera mjög gott í allt sumar en við höfum nú samt aðeins misst af því sökum vinnu og í síðustu viku þegar hitametin voru slegin þá var ég lasin heima með hálsbólgu, hor og örugglega hita - hjúkkan á sko ekki hitamæli!!! og gat því lítið sem ekkert sólað mig - hefði hvort eð er bara verið að vinna!! En við ætlum að bæta úr þessu öllu með því að fara í útilegu um næstu helgi. Ég var líka búin að lofa Helgunni minni útilegu og það er eins gott að ég standi við það þannig að við ætlum að draga hana með okkur í Hellishóla í Fljótshlíðinni og spáin lofar góðu enn sem komið er..jibbbí.. ég er farin að hlakka svo mikið til:)
---
ég vona að þið hafið það gott elskurnar.. ég kannski skelli inn einhverjum myndum við tækifæri, ég reyni að smella af annað slagið.....
adios!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Ellý:
æji hvað þetta er sæt mynd af þeim, ég óska frænda til hamingju.
06.08.08 22:19
Svanhildur:
Takk fyrir síðast. Myndirnar eru ÆÐI!!
08.08.08 15:01
ellý: svanhildur skilar því örugglega:)
svanhildur: já takk sömuleiðis, þetta var svooo skemmtilegt brúðkaup, hef sjaldan skemmt mér svona vel. og gott að ykkur líkar myndirnar:)
13.08.08 11:22
Mundi smá spældur...:
...yfir því að ættjarðarlögin heiti nú fylleríissöngvar ;) Og ekki fórst þú nú fyrst í háttin kella mín ;) Þetta var magnað og takk fyrir samveruna þessa helgi
PS...myndirnar eru snilld hjá ykkur ... Takk takk
13.08.08 18:29



