Laugardagur 12. júlí 2008 / 21:49 / einn eftirmiðdagur í júlí

ég og bóndinn tókum okkur frí eftir hádegi á fimmtudag og fórum í bíltúr í blíðviðrinu. Ferðinni var heitið að Skógarfossi og Seljalandsfossi. Veðrið var mun betra hjá Seljalandsfossi - einhver skýjasúld var við skógarfoss en það er víst ekkert svo óalgengt!

Síðan grilluðum við okkur hamborgara og pylsur á tjaldsvæðinu á Hvolsvelli og héldum síðan í kvöldhressingu til Grétu mágkonu og Jóhannesar en þau voru á Flúðum á ferðalagi. Hægt er að sjá nokkrar myndir úr ferðinni hér.


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Helga:

Flottar myndir hjá þér ;)

13.07.08 23:53


baddy:

takk fyrir:) þetta var einungis í fyrsta skipti sem ég fer að þessu fossum, ég trúi að ég eigi eftir að fara nokkrum sinnum í viðbót:)

14.07.08 09:44


Ingibjörg:

Flottar myndir! Takk fyrir síðast :)

23.07.08 16:06


Hildur Lind:

Hæhæ.. :)
Takk fyrir kommentið um daginn, rosa gaman að heyra frá þér!! :)
Ákvað bara að kvitta hér líka ef þú hefur ekki kíkt aftur inná síðuna mína.. ;)
Bestu kveðjur frá NZ
Hildur

06.08.08 04:02


© 2001-2007 Dagny Reykjalin