Miðvikudagur 25. júní 2008 / 16:41 / Kjaramál
Þar sem kjarabarátta okkar hjúkrunarfræðinga er í hámarki núna og yfirvinnubann á næsta leyti langaði mig að deila með ykkur hérna smá vangaveltum.
---
Ég var að skoða íbúðir á mbl.is og gera útreikninga þar og eins og mér reiknast þá er kostnaðurinn við húsnæðisrekstur um 200þús á mánuði með öllu. Ég sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur með 4 ára háskólanám, svo ég tali nú ekki um allt það nám sem ég var í áður í framhaldsskóla, þá eru grunnlaun mín 226þús fyrir skatt. Jú inn í þetta á eftir að reiknast vaktarálag þar sem ég verð á þrískiptum vöktum svona þegar líða tekur á sumarið, en á móti kemur að það á eftir að taka af mér í skatt.
---
Þetta sýnir mér að ég á ca 26þús krónur í afgang af laununum mínum, ef við gerum ráð fyrir að vaktarálagið fari í skattinn, og þá á eftir að borga þetta blessaða bensín og eitthvað verð ég að eiga í mig og á. Stundum skil ég ekki afhverju ég var að fara í þetta nám, og afhverju það er ekki betur metið í þjóðfélaginu. En vinnan er áhugaverð og sem er plús en það borgar ekki reikningana, hvað þá LÍN þegar það kemur!! Hvað á maður að gera??!!
---
Mér finnst skammarlegt að stjórnvöld skuli ekki gera meira í málunum, þau virðast hunsa algjörlega niðurstöður atkvæðagreiðslunnar um yfirvinnubann, hjúkrunarfræðingar eru greinilega ásáttir við sýn kjör og það sem þeim hefur verið boðið. Þetta er alveg óásættanlegt.
Ekki vildi ég verða lasin á næstunni og þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda! Úfff
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Ég er búin að byrja nokkrum sinnum að skrifa komment hérna en alltaf endað á því að þurrka það út vegna gríðarlegra blótsyrða, en það er örugglega það eina sem hægt er nota til að lýsa þessu. Eins gott að það verði eitthvað gert.
26.06.08 03:54
Styð ykkur heilshugar!
Sitthvað hef ég lært af verkföllum hérna í Danmörku, hjúkrunarfræðingar og umönnunarstéttir (SOSU, þeir sem vinna á elliheimilum, og ljósmæður t.d.) voru hérna í mjög löngu verkfalli (6 vikur minnir mig) og þá mátti ekki vinna neina vinnu sem ekki þótti lífsnauðsynleg, til dæmis gamalt fólk sem ekki gat klætt sig sjálft komst ekki á fætur í margar vikur og nýbakaðar mæður voru sendar heim nánast áður en það var búið að klippa á naflastrenginn (med blod og afføring).
Allan tímann sem verkfallið stóð voru þeir sem voru í verkfalli úti á götu, á fjölförnum götuhornum með skilti eða niðri í bæ í hópum. Þeir sem voru búnir að skrá sig í frí fengu ekki fríið sitt heldur þurftu að mæta á verkfallsvaktina. Að sjálfsögðu.
Ég skrifaði smá pistil þann 1. maí um verkfallið oflr.:
http://www.reykjalin.com/blog/archives/2008/05/1_mai_og_grafis.html
En ég held að það sé töluvert erfitt að vera í kjarabaráttu/verkfalli á Íslandi. Hins vegar held ég að allir styðji kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga, þessi grunnlaun eru skammarleg fyrir svo langt og krefjandi nám og þá ábyrgð sem fylgir starfinu.
baráttukveðjur!
26.06.08 13:15
Sóla:
Ég styð ykkur heilshugar. Það er algjörlega út í hött að þetta skuli viðgangast. Svo eru flugumferðastjórar á sama tíma að fara í verkfall þegar þeir eru með meira en 600 þúsund í laun á mánuði. Leifa sér að klúðra vinnutíma annara atvinnustétta í leiðinni þegar þeir hafa ekkert með meiri peninga að gera.
26.06.08 17:45
já ég vona svo sannarlega að það verði samstaða innan stéttarinnar varðandi yfirvinnubannið sem í reynd meirihlutinn vildi. En mér finnst vanta að útskýra fyrir almenningi hvað felst í þessu yfirvinnubanni til að fá alla í lið með okkur. já og hvernig væri að sjá svona vel hannaða mótmælagöngu eins og danirnir voru með. það verður eitthvað að fara að gerast sko!
26.06.08 18:01
skemmtilegt að segja frá því að ég var að fá minn fyrsta launaseðil. ég fæ 180þús í grunnlaun fyrir að vera í 80%vinnu, það er fyrir skatt. ég er enn að hlæja því þetta er bara fáranlegt!
02.07.08 18:59
svo ég vitni nú í Chandler í friends "im laughing but only the tears are real"!
02.07.08 19:02
Sammála! Er svo reið að ég ætla ekki að byrja að tjá mig um þetta því þá tekur það ekki enda! Held að ef þessir samningar komi ekki vel út að maður fari að hugsa sinn gang og íhuga að skipta um gír og læra annað. Ég nenni ekki að struggla svona og vinna svona miklar vaktir allt mitt líf...
04.07.08 18:27
kjánakerfi, ég fékk nokkrar svona innanhúss sögur þegar verkfallið var alveg á næstu stráum gegnum móður mína sem er líka hjúkka sko og þetta er einfaldlega bara kjánalegt.
Leikskólakennaraverkfall dana þótti mér hinsvegar sniðugt og það fór sko ekki fram hjá neinum hvað var í gangi, ..og þeir fengu held ég ágætis hækkun, allavega skilst mér það á konunni minni...
05.07.08 20:05



