Fimmtudagur 08. maí 2008 / 00:49 / nýjar myndir og fleira
Ég er búin að vera að leika mér svolítið með nikon D80 vélina mína (svona síðan ég fór að geta loftað henni eftir viðbeinsbrotið) og ég er svo ástfangin. Það er svo gaman að fikta - ég er nú reyndar ekki orðin nógu dugleg við það ennþá en þetta kemur smám saman. Ég var að setja nokkrar myndir inn á myndasafnið mitt svona ef ykkur langar að kíkja.
---
Annars þá er bara allt í rólegheitunum hérna. Líf mitt einkennist af bið þessa dagana, ég er alltaf að bíða eftir einhverju og er bara að dangla mér á daginn. Biðin eftir skilum skilum á heildaryfirlestri frá leiðbeinanda var á enda í dag. Þetta var ss síðasti lesturinn hjá leiðbeinanda fyrir lokaskil. Það voru nú mjög fáar athugasemdir þannig að við vorum ekki lengi að yfirfara þetta og nú erum við að bíða eftir að Björn sé búinn að lesa yfir málfræðina og þá er bara allt klárt í prentun. Við erum að vonast til að ná að henda þessu í prentun fyrir helgi og helst fá þetta tilbaka á föstudaginn rétt fyrir lokun því eins og svo oft áður þá ætlum við Andrea að skella okkur suður á sunnudaginn. Held að það sé að verða hefði hjá okkur að fara alltaf saman suður á vorinn þegar skólinn er búinn - skella togga í græjurnar og syngja með - klikkar aldrei.
---
Ég hef orðið mikið vör við frönsku herþoturnar hérna og mér stendur nú ekkert allt of mikið á sama. Þvílíki hávaðinn í þeim og ég get ekki sagt að ég upplifi verndartilfinningu af því að sjá þær þarna í loftinu. Mér verður reyndar bara hugsað til þeirra landa þar sem stríð ríkir og hversu hræðileg tilfinning það hlýtur að vera að heyra í svona vél og vita ekki hvort hún sé að koma með næstu sprengju eða ekki. Mér finnst þetta svo óhugnalegt. Mér verður illt við tilhugsunina um það hversu grimmur þessi heimur er og er oft mjög þakklát fyrir að hafa fæðst á Íslandi og eiga svona góða fjölskyldu og vini. En þessar herþotur sem eru á sveimi minna mann á að þrátt fyrir að við búum á afskekktri eyju út á ballarhafi þá erum við jafngott skotmark og hvert annað land!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
You know I simply adore your black leatherpants! =)
11.05.08 16:03



