Mánudagur 26. maí 2008 / 10:36 / JÆJA!!!
jæja það lengjast alltaf pásurnar mínar! hehe
Ég er búin að vera í góðu yfirlæti í borginni hjá honum Gunnari mínum og fjölskyldu hans. Við erum að verða búin að koma okkur ágætlega fyrir hérna og mér líst mjög vel á þetta allt saman.
Það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðustu vikur - já ég tala í fleirtölu!!!
Eitt föstudagskvöld fyrir nokkru síðan bauð Gréta mágkona mér í kvennareið og Erla (skásystir Gunnars :)) kom með okkur og um 130 aðrar kvennsur úr reiðfélaginu Fákur sem staðsett er í Víðidalnum.
Ég á Geisla, voða ljúfur og góður fákur
jújú ég var ekki kona meðal hesta-kvenna nema vera með smá dreitil í hönd.
Að sjálfsögðu þurftum við að styðja okkar fólk í Eurovision og var því haldin smá gleði hérna í Víðilundinum. Fámennt en mjög svo góðmennt og alveg þrususkemmtilegt kvöld.
það var sko sungið og dansað...
hérna erum við Erla að taka lagið "hvar ertu nú" og létum sko gula hanskann ekki vanta, Jóhannes sá um að taka viðlagið.
En eftir dágott frí í borginni og starf í nýrri vinnu - bruna-/lýta og HNE (háls-, nef og eyru) deildinni, héldum við skötuhjúin norður á land í útskriftina mína. Jújú ég var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur:D

stórglæsilegar bekkjarsystur hér á ferð, ég veit ekki hvort kjóllinn minn sést en hann er sko sérsaumaður af mér og ástu:)
síðan kemur ein mynd af okkur nesó-gellunum
Um kvöldið var ég með grill fyrir systkyni og nána vini. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt kvöld og ég vil þakka öllum kærlega fyrir mig:)
Nú tekur bara alvaran við, kvöldvakt í kvöld og vinna alla helgina:D
ein mynd hérna í lokinn af okkur skötuhjúunum.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Til hamingju með áfangann. Hlýtur að vera skrítin tilfinning að vera ekki að fara í skólann næsta haust. Örugglega mörg mörg ár í það hjá mér :-) Bestu kveðjur héðan úr Árósum,
Sigga
20.06.08 23:09
Sóla:
til hamingju vinkona, hlakka til að sjá þig
22.06.08 20:16
Til hamingju með allt saman systir góð - ég er svo stolt af þér :)
23.06.08 15:31
takk fyrir elskurnar, ég trúi varla að þetta sé búið! en ég hlýt nú að fara í eitthvað meira nám í framtíðinni ef ég þekki mig rétt!! hehe
23.06.08 17:26
Til hamingju Baddý mín :)
Endilega bjallaðu í mig við tækifæri og ég lofa að fara að koma suður ;)
24.06.08 18:00



