Föstudagur 09. maí 2008 / 16:27 / hin langþráða stund runnin upp

Lokaritgerðin okkar var sótt í prentun í hádeginu í dag og við Andrea drifum okkur upp á barnadeild til Sísíar þar sem hún er í verknámi og við skrifuðum þar undir öll 7 eintökin. Síðan brunuðum við drean með allt heila klabbið upp í skóla og skiluðum til Láru skrifstofustjóra heilbrigðisdeildar. Það voru nú heldur blendnar tilfinningar þegar sú stund rann upp að við þyrftu að láta ritgerðirnar af hendi. Vorum heldur tregar til að slepptum að lokum takinu:)
Ótrúlegt að þessu sé að ljúka. Mér finnst svo stutt síðan ég var að byrja í þessu námi en samt eitthvað svo langt og ég trúi ekki að þetta sé búið og ég sé að fara að útskrifast! við eigum reyndar eftir að halda kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar í lokaritgerðinni og það verður föstudaginn 30.maí en það er ekkert til að stress sig yfir. Ég er bara ekki enn að trúa að þetta sé búið:)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Hanna:

Til hamingju með skilin systir góð! Já tíminn er sko búinn að vera fljótur að líða... fjögur ár flogin útí buskann :)

10.05.08 12:34


Sóla:

Til hamingju með ritgerðarskilin. Ég veit þetta er frábær tilfinning. Kiss kiss

11.05.08 20:26


ellý:

til lukku, þetta er stór áfangi. Nú tekur eitthvað nýtt og spennandi við. Eins og til dæmis það að flytja í borgina og hitta mig stöku sinnum, ekki leiðinlegt það hehe.

14.05.08 17:23


Ingibjörg:

Til hamingju!

15.05.08 02:26


baddy systir:

takk takk stúlkur, jú mikil ánægja að hafa klárað þetta:)það er búið að vera ljúft að vera í fríi en ég hlakka alveg til að fara að vinna aftur, maður eyðir alltof miklum peningum (sem maður á ekki) þegar maður er í fríi!

15.05.08 22:19


Gústi:

til hamingju með ritgerðarskilin, þetta er bara frábær tilfinning :)
Kv Gústi

16.05.08 14:38


Ninna:

til hamingju með að vera búin að skila ritgerðinni...

25.05.08 17:15


© 2001-2007 Dagny Reykjalin