Mánudagur 05. maí 2008 / 14:36 / fréttir!
Jæja það er nú langt síðan ég hef dritað niður orðum hérna. Kannski er mál til komið huhh! Við skvísurnar í lokaverkefnahópnum erum bara búnar að vera að dunda okkur í verkefninu.
Tókum okkur rúma viku í frí og ég kíkti suður til míns heittelskaða og við fórum í fataskápaleiðangur og festum kaup á einum fataskáp og einni kommóðu – ágætis kaup þar. Ég ætla síðan að flytja suður eftir lokaskil á ritgerðinni og vera hjá honum Gunnari mínum. Gréta mágkona og Jóhannes ætla að vera svo góð að skjóta yfir okkur skjólshúsi eitthvað fram á veturinn, jafnvel vorið – allt eftir því hvernig lánamálin fara í landinu.
---
Síðan fékk ég mér eitt stykki vinnu í sumar. Ég mun því verja sumrinu í 80% vinnu á bruna og lýtalækningadeildinni í Fossvoginum. Ég er voðalega spennt fyrir því. Og ef ég verð áfram spennt þá get ég fengið að vinna þar áfram.
---
Ég nýtti mér þjóðargjöfina í gær og keypti mér 3 bækur. Eina matjurtabók þannig að ég og Gréta getum spreytt okkur í matjurtaræktun, uppskriftarbók með kjúklingaréttum og bók um teygjur svo ég geti nú teygt á eftir garðvinnuna og kjúklingaátið.
---
Núna þurfum við bara að leggja lokahönd á ritgerðina. Hún er núna í yfirlestri hjá bæði kennaranum og Birni, fyrrverandi tengdapabba Hönnu sys, hann ætlar að fara yfir málfræðina fyrir okkur. Við gerum því ráð fyrir að skila henni á tilsettum tíma. Bara ljúft.
---
En ég ætla að skreppa eitthvert og reyna að gera eitthvað. Það er sól úti núna- um að gera að nýta sér það.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Ellý:
Það verður gaman að fá þið á svæðið
06.05.08 21:08
Oh ég hlakka svo til að fá þig suður!!! :D
06.05.08 21:45
Gangi þér vel á lokasprettinum með lokaverkefnið! Kannski að ég ætti að kíkja á kynninguna. Á eftir að sakna þín...
07.05.08 17:09
Ohh já hvað það verður gott að fá þig í borgina! Og þú manst að ég er alltaf laus í hvað sem er eftir vinnu eða á frídögum :) Sjáumst í næstu viku :D
07.05.08 23:24
Ellý: já við verðum að vera duglegar að hittast
Hanna sys: jiii ertu að gera þér grein fyrir því að við höfum ekki verið á sama stað að sumri síðan 2001 en það var nú samt stuttur tími.
Ingibjörg: já ég á líka eftir að sakna indversku-spjall-kvöldanna, en þú verður bara að vera dugleg að heimsækja okkur þóru suður
Rebekka: já ég skal muna það. Er alltaf til í að kíkja í nauthólsvíkina með þér og krílinu:)
08.05.08 01:04



