Þriðjudagur 01. apríl 2008 / 20:38 / Kaldbaksmyndir
Jæja loksins lét ég verða að því að setja inn nokkrar af fáu myndunum sem ég tók í Kaldbaksferðinni góðu á föstudaginn langa (sorry sys hvað þetta tók langan tíma - tótally forgot skilurrru!)
---
Annars þá er allt gott að frétta af mér. Verkirnir eru loksins að minnka og hreyfifærnin í hendinni kemur smám saman. Ég er alltaf að reyna að þjálfa hendina til að fá styrkinn aftur í vöðvana og til að styrkja beinið en þetta kemur smám saman. Hendin er strax farin að rýrna pínu sökum notkunarleysis. Alveg ótrúlegt hvað þetta gerist hratt! Ég get notað suma vöðva en ekki alla. Ég get t.d ekki lyft hendinni beint upp - alveg fáranlegt sko og ég get ekki haldið á neinu þungu en ég get pumpað bicepinn og klætt mig í bol og jakka nánast alveg sjálf - ef fötin eru teygjanleg og víð.
---
Þrátt fyrir þessa óheppni að brotna þá finnst mér ég samt vera heppnasta manneskjan í öllum heiminum. Ég á nefnilega svo góðan og æðislegan kærasta. Hann stóð sig eins og hetja við að hjálpa mér eftir byltuna - fór fram með hverja ælufötuna á fætur annarri og skolaði fyrir mig (ég hélt ég væri með magapesti því þetta var svo oft en verkjalyfin voru víst sökudólgurinn), klóraði mér á stöðum sem ég náði ekki til, knúsaði mig þegar ég mér leið svo illa út af verkjum, hjálpaði mér að rísa úr rekkju og leggjast aftur (og það var svo ógeðslega vont) og svo margt margt fleira. Ég bara vissi ekki að svona strákar væru til og ég er svo skotin í honum! Síðan var hann líka svo sætur að gefa mér útskriftar/afmælisgjöfina fyrirfram (þökk sé falli krónunnar!) og nú á ég Nikon D80 myndavél og hún er svo falleg, nema ég hef ekkert getað prófað hana því ég lofta henni ekki ennþá með hægri!! en við ætlum sko að fara í ferðalög í sumar og taka þónokkrar myndir, ekki spurning.
já lífið er dásamlegt:)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
JÁ það er sko sannarlega gott að eiga góða að þegar maður lendir í svona hremmingum.....og er fínt að þú hefur náð þér í svona góðann mann eins og hann Gunnar Smára því þetta verður ekki í síðasta skiptið sem þú, litli hrakfallabálkur, brýtur þig heheh:)
myndavélin er glæsileg....spurning hvort þú komir með mér og Gunna á ljósmyndanámskeið í sumar?
Jæja nóg af blaðri......er að fara að hitta þig eftir hálftíma hehe:)
knúúúus og takk aftur fyrir afmælisgjöfina
03.04.08 08:32
takk rebekka mín en ég ætla nú að reyna að komast hjá því að lenda í svona brotastandi aftur.. ekki alveg nógu gott fyrir þolinmæðina sko.
en já ekkert að þakka.. njóttu bara vel:)
03.04.08 15:04
Berglind Rut:
Elsku Baddy okkar
innilega til hamingju med afmaelid i dag...
hope u have a wonderful day filled with joy and happiness :P
knus fra NY
Berglind, Deon og Brandon Anton
ps...sendi kortid titt ut a nes :)
04.04.08 03:53
Svanhildur:
Til hamingju með afmælið!
04.04.08 10:55
takk kærlega fyrir kveðjurnar:) það er að verða óhugnalega stutt í 30 árin sjétturinn mar.. þegar maður var krakki þá voru 30 ára konur bara kjéllingar! úfff!
04.04.08 14:58
Til hamingju með daginn elsku stelpan mín:) Hlakkka til að fara út að borða með þér í kvöld.
04.04.08 16:33
Mundi:
Já bestu afmælisóskir. Njóttu dagsins.
04.04.08 19:50
takk takk öllusömul
04.04.08 21:44
daia:
hey... hefurðu fattað hvað dagsetningin í dag er mögnuð... 040408 í staðin fyrir 040480 !!
til hammó aftur :)
04.04.08 22:47
nöjts ég var ekki búin að fatta! og í dag er föstudagur og ég fæddist á föstudegi!!! magnað!
04.04.08 23:11
Sóla:
hæ hó, Frábært að eiga svona góðan kærasta sem hugsar um mann á svona stundum. Smá öfund með myndavélina, hahaha. En allavegana Til hamingju með afmælið í gær.
Kossar og knús frá London
05.04.08 12:39
Gleður mig að þú ert búin að finna ástina þína:)
Já, það er ekki langt síðan við höfðum það megagott í víðimelnum . Eg á enn ljóðið sem þú gerðir þegar ég braut óvart bollann þinn. Annars flutti ég aftur í Viðimel síðasta haust og var með Heiðdísi í tæpa 3 mánuði áður en við Hulda fluttum til Köben. Við söknuðum þín þar sko, ekki spurning..
Að lokum verð ég að viðurkenna að ég hef sameinast sólu í öfundarflokknum
Kannski að eg nái að kíkja á útskriftina þína því Hulda útskrifast líka þá frá Kennaradeildinni. Fer eftir vinnuplaninu hvort ég komist en sjáumst vonandi.
Kveðja frá Kangerslussuaq, (bær í grænlandi sko)
07.04.08 16:50
jebbs, það varst pottþétt þú.. ég kom heim einhverja nóttina og braut bollann inná baði og gerði miða um að ég ætlaði að sópa hann upp daginn eftir svo þið ættuð að passa ykkur þegar þið færuð inná baðið morguninn eftir. Svo þegar ég fer á fætur ert þú buinn að búa til þetta svaka flotta ljóð.
Svo er fólk að segja að ég sé gleyminn, hvað er það nú!!
08.04.08 21:48



