Laugardagur 08. mars 2008 / 15:30 / Við viljum launahækkun!
já það er ekki bara á Íslandi þar sem hjúkrunarfræðingar eru ósáttir við launin sín. Hjúkrunarfræðistéttir á Norðurlöndunum eru líka mjög ósáttar með sína stöðu og stefnir allt í allsherjar verkfall á Norðurlöndunum, að undanskildum Finnum þar sem þeir náðu fram 28% launahækkun á næstu fjórum árum.
Grete Christensen, 1. varaformaður danska hjúkrunarfélagsins segir m.a:
"Laun hjúkrunarfræðinga hafa dregist svo verulega aftur úr að ef þau verða ekki leiðrétt nú stöndum við ekki bara uppi með vandamál hér heldur með Norrænt vandamál af stærðargráðu sem á sér enga sögulega samsvörun. Alls staðar og um allt of langan tíma hafa þessar kvennastéttir verið beittar of miklum þrýstingi".
Það er kominn tími til að sýna samstöðu! það er löngu kominn tími til að stjórnvöld vakni af sínum væra blundi og fara að taka ábyrgð á heilbrigðiskefinu og hætta að varpa henni yfir á starfsfólkið.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Já það er sko sannarlega kominn tími til að við stöndum saman, en manni finnst það ótrúlegt ef þeir gera ekkert í þessu núna! þeir verða að byrja að leysa hnútinn á þessum stað.....það er ljóst!
09.03.08 18:35
Heyr heyr!!!
13.03.08 17:47



