Laugardagur 22. mars 2008 / 16:16 / svona fór sú ferð...
Jæja þá er föstudagurinn langi liðinn með sinni Kaldbaks-hefða-ferð. Eins og í fyrra þá var fjölmennt í troðarann og síðan haldið af stað upp. Sólin var aðeins farin að gæjast út úr skýjunum um hádegisbilið en þegar upp var komið var skyggnið akkúrat ekkert. En við létum okkur hafa það og héldum niður á leið. Stiga-sleða liðið náttúrulega bara hvarf niður fjallið og sáum við þau ekki fyrr en á fyrsta stoppi, en ég, Hanna sys og Sandra dóluðum þetta á snjóþotunum og diskum og skemmtum okkur alveg konunglega við það... það var alla veganna mikið hlegið á leiðinni. Diskurinn sem ég var á var nú reyndar ekki alveg að gera sig þannig að ég og Hanna sys renndum okkur bara saman á einni snjóþotu með tilheyrandi byltum og hlátrasköllum. Mér fannst nú þessi ferð ganga hraðar fyrir sig en ferðin í fyrra en þetta er alltaf jafn gaman. Síðan biðu okkar þvílíku kræsingarnar hjá Siggu systir mömmu, það klikkar nú sjaldan á því heimilinu, ég get nánast sagt að ég hafi etið á mig gat þarna.
Hörðustu naglarnir í ferðinni ákváðu síðan að skella sér aftur í fjallið og fara í stígasleðakeppni. Þorsteinn Eyfjörð sá um að ferja liðið upp Grenivíkurfjallið síðan voru brekkurnar og gilin testuð. Ákveðinn aðili var búinn að mana mig svo upp í race niður síðasta spottann og hrúturinn í mér þarf sko ekki mikið til að láta kveikja í sér. Síðan var bara allt gefið í botn og brunað niður. Mér leist nú ekkert á blikuna þegar sleðinn var kominn á mígandi siglingu þannig að ég reyndi að stoppa mig og endaði á því að fljúga all svakalega fram fyrir mig og heyrði þegar small í hægra viðbeininu og þá vissi ég um leið að það var farið í sundur. Ég get ekki sagt að það hafi verið gott en samt ekki eins vont og það sem koma skyldi. Því miður var ég ekki eins verkjadeyfð og síðast þegar ég brotnaði. Þannig að þessi sleðaferð endaði á slysó eins og sjá má hér.

þessi er tekin beint framan á
tekin með 10°halla og ég fiffaði litinn smá
minni hringurinn sýnir ekki brot heldur venjuleg samskeyti en stærri hringurinn er utanum brotið.
Og við þessu eru bara fatli og verkjalyf – sem fara í hausinn minn = pínu sloj, og í magann = búin að kasta upp einu sinni!! Jú og ég er verkjaminni! síðan heyri ég stndun smella í beinunum þegar þau nuddast saman!
Annars þá held ég að ég eigi æðislegasta kærasta í öllum heiminum. Hann er svoleiðis búinn að dekra við mig allan tímann, ég var alveg klökk yfir því í gær hvað hann var góður við mig.
Ég hefði varla getað trúað því hvað það er vont að brotna á þessum stað, ótrúlegt hvað maður notar vöðvana þarna í kring mikið og hvað allar hreyfingar taka mikið í. Ég finn samt hvað það kemur sér vel að við Andrea erum búnar að vera mjög duglegar í ræktinni síðustu daga og fætur og magi mun sterkari fyrir vikið.
Þetta bætist við i hjúkkureynslubankann
p.s þessi færsla var í boði vinstri handar þar sem sú hægri er í fatla!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Sigrún:
Jahérna. Þú ert alveg mögnuð!
Láttu þér batna!
Sigrún
22.03.08 17:29
Sigrún:
Jahérna. Þú ert alveg mögnuð!
Láttu þér batna!
Sigrún
22.03.08 17:30
Helga:
Maður getur nú ekki annað en brosað út í annað yfir óförum þínum stundum. Finn samt ógurlega til með þér líka. Sendi þér mína sterkustu beingróandi strauma ~~~
22.03.08 23:26
ég verð bara að bruna norður og taka við skeiningunum fyrst að Gunnar Smári er að fara í dag....en svona í alvörunni....gengur það ekkert illa??
Tja...við kannski ræðum þetta bara þegar ég kem.....ég og bumbi skulum vera voðalega góð við þig :) hlakka til að sjá þig.
24.03.08 09:34
Snyrtilegt brot hjá þér....þú ert náttla bara snillingur!! Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með skeiningar þá búum við svo vel á HO deildinni að eiga sjálfskeinara.....algjör snilld sko!!
Hafðu það gott og vonandi færðu nóg af verkjalyfjum til að lina sársaukan..hehe!!
Kveðja Anna María
24.03.08 11:36
takk fyrir hugulsemina:) skeiningarnar ganga fínt, ég er komin með góða tækni við þetta allt saman. morgnarnir eru bara verstir-þegar verkjalyfin eru farin að minnka í blóðinu!!
24.03.08 13:24
OMG... VONA AD THER LIDI BETUR BADDY MIN... VILDI BARA THAKKA THER KAERLEGA FYRIR FALLEGU GJAFIRNAR SEM THU OG ELLY SENDU OKKKUR . FENGUM PAKKANA I MORGUN. MYNDIN AF BRANON ER ALGJORT AEDI :)
KNUS KNUS OG TAKK FYRIR OKKUR - OG TAKK FYRIR FALLEGT AFMAELISKORT TIL MIN :) BACK AT JA GIRL
XOXO Berglind og Brandon
ps.. GLEDILEGA PASKA..
24.03.08 19:06
elskan mín .... ekki kemur þetta á besta tíma hjá þér ...en láttu þér batna :)
25.03.08 00:11
Ninna:
ég segi nú bara ái....láttu þér batna.
28.03.08 13:45
Ellý:
Æjjii greyjið mitt, ég vona að þér batni sem fyrst.. þetta er örugglega ekki gott.
28.03.08 14:55
takk fyrir góðar kveðjur.. ég er öll að koma til, verkirnir allir að minnka en samt til staðar og ég er komin með tækni við að gera allt mögulegt.. get t.d blásið og slétt á mér hárið.. svona að mestu allavegana og það er jú aðalatriðið:)
28.03.08 20:42
Mundi:
Æ æ æ - bestu batakveðjur héðan.
30.03.08 16:19
hvað er málið með þig og þín brothættu bein, drekka meiri mjólk, og ekki neina léttmjólk!!
þó kannski bót í máli að þú færð fullt að dekri, kannski þetta sé ekki eins vitlaust þrátt fyrir allt, hmm
31.03.08 16:34



