Fimmtudagur 22. mars 2007 / 23:53 / skólaleiði..eða bara leiði

ég get eiginlega ekki skrifað neitt sökum skólaleiða! ég hef mig ekki í að byrja að lesa, - reyndar hef ég ekki haft tíma til þess þar sem ég er að reyna að unga út úr mér ritgerð, hafði power point showið af með herkjum!! svo finnst mér þetta ekkert alveg fög til að hrópa húrra fyrir!! en það styttist í páskafrí, reyndar er það ekkert svo ánægjulegt því það þýðir að prófin eru á næsta leiti *glúbb*.


ég er döpur þessa dagana því amma er veik, hún þurfti að fara í aðgerð í gær og er mjög slöpp eftir hana, held að 93 ára gamli kroppurinn verði einhvern tíma að ná sér. hún amma mín er svo falleg og góð kona, hún er alltaf í góðu skapi og alltaf svo glöð að sjá mann, hún á svo stóran hluta í hjarta mínu, mér finnst hún svo mikið krútt. ef orðinu amma væri flett upp í orðabók þá kæmi mynd af henni.


sumarið er farið að skýrast. við erum komnar með stóra íbúð á neskaupsstað og þurfum ekki að borga neina leigu sem hentar mér mjög vel. ég vona að þetta verði skemmtilegt og lærdómsríkt sumar með mikilli sól, gleði og glensi.


ég ætla að reyna að koma mér í háttinn. planið er að fara í ræktina í skólanum á morgun, sjáum til hvernig það fer!

kv baddý


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Helga:

Damn þegar ég samþykkti að heimsækja þig í sumar þá steingleymdi ég hvert ég væri að fara að heimsækja þig :o Þú er klár þykir mér ;)

23.03.07 02:20


Kolla neighbour:

hehe kannski komin tími til að þú farir í ræktina á meðan að ég sef eða!!! go girl;o) sjáumst mega hressar í kátakoti sem fyrst hehe

23.03.07 02:36


Kolla neighbour:

hehe kannski komin tími til að þú farir í ræktina á meðan að ég sef eða!!! go girl;o) sjáumst mega hressar í kátakoti sem fyrst hehe

23.03.07 02:36


Kolla neighbour:

jei láttu mig vita þegar þú ætlar að æfa, ég ætla þá að sofa, bara sona til tilbreytingar þar sem þú ert yfirleitt sofandi þegar ég fer í ræktina hehe sjáumst fljótlega í rosa stuði í kátakoti;o)

23.03.07 02:38


baddy:

já helga, not just að pretty face!
kolla svo ég noti nú orðin sem almar skrifaði einu sinni hjá freyju: say it not spray it!! hehehe

23.03.07 08:35


Kolla neighbour:

jiiii þið almar eruð svo fyndin að ég bara hlæ alveg í bú og bylgju!!!!!

23.03.07 15:21


gusti:

hæhæ babe
það er bókað að eg kem austur í sumar, bókaðu eina helgi handa mer :)
kv gusti

24.03.07 15:48


baddy:

gústi, þetta er bókað!

24.03.07 16:41


Bobby:

Eg var líka í leigulausu húsi á neskaupstað eitt sumar, við bjuggum í husinu þar sem hin fræga kvikmynd "hafið" var tekin upp í,
Ef vatnið á neskaupstað er tært, þá er það mér að þakka:)

Mæli líka með pizzuhlaðborðinu í Egilsbúð..

27.03.07 18:38


almar:

Haha snilld ! ...

29.03.07 03:00


© 2001-2007 Dagny Reykjalin