Sunnudagur 11. mars 2007 / 13:58 / ritgerðasmíði og uppliftingur

ég og karó ákváðum að taka okkur smá pásu frá ritgerðasmíðum og skella okkur í einn öllara eða svo á kaffi amour svona af því að það er orðinn reyklaus staður. ég habbði (hehe) síðan samband við freyjuna mína, svona af því að ég hef ekki hitt hana skammarlega lengi, og þá vildi einmitt svo skemmtilega til að hún ætlaði að skreppa aðeins út að hrista sig. hún tjáði mér það að systir mín væri einnig á leið í bæinn í sömu erindagjörðum. þá var kominn hinn myndarlegasti danshópur.


reyndar var förinni ekki heitið á kaffi amour heldur á kaffi ak, mun efnilegri danstónlist þar skildist okkur. freyja og vinkonur voru ekki lengi að drífa sig á vélsmiðjuna þar sem heldri borgarar bæjarins koma saman, ég held að þær hafi verið að gera tilraun til að lækka meðalaldurinn þar all verulega;) en ég karó og hanna systir slitum skónum við undirleik justin timberlake, beyoncé, jeff who og margra fleiri. síðan komu alveg fjallmyndarlegir karlmenn og tjúttuðu þarna með okkur og var nú greinilegt að þetta voru utanbæjarmenn því þessum hefðum við verið búnar að taka eftir hehe en það fór nú að kárna gamanið þegar við sáum hring á fingri - jújú maður fór nú að taka eftir svona hlutum um 23 ára aldurinn;) en þeir buðu okkur nú samt í pizzupartý og sprite og þar sem hanna systir var að driverast þá létum við slag standa. þetta voru algjörir öðlingspiltar og gaman að spjalla en mikið var nú ljúft að hafa svona driver, takk hanna;)


en nú er alvaran tekin aftur við, mættum upp í skóla rétt eftir hádegi - svona líka sprækar. það er von um að nokkrar línur í þessari blessuðu ritgerð fari að skila sér á blað!

góður draumur mar!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

hanna:

takk sömuleiðis! Þetta var alveg þrælgaman ;) Fínustu piltar þar á ferð...
Ekki laust við að maður hafi verið frekar þreyttur í dag hehe. Fór að sofa sjö í morgun! :D Það var samt alveg þess virði, ótrúlega gaman að dansa með ykkur Karó! Hvernig væri að við gerðum þetta nú aðeins oftar við systur??? Getum líka verið með smá spurningarkeppni um hvor er eldri ;)

11.03.07 23:34


Ellý:

En gaman að því að Amor sé orðinn reyklaus staður, góð þróun. p.s. Þú ert mega sæt með carmen rúllurnar :)

12.03.07 18:19


© 2001-2007 Dagny Reykjalin