Fimmtudagur 25. febrúar 2010 / 21:02 / Allt að gerast
Jæja við erum búin að finna okkur nýja íbúð af því að við þurftum að flytja úr þessari. Við fórum nú ekkert langt, höldum okkur ennþá í Garðabænum, því þar er svo gott að vera:) Við verðum bara rétt í næsta nágrenni við Hönnu systir eða rétt um 400m frá henni. Við erum búnar að lofa hvor annarri að vera duglegar að fara saman í hunda og barnavagnagöngur og hittast og sauma, það mun gerast sko:)
En planið var að flytja restina í dag, en veðurguðirnir ákváðu að það myndum við ekki gera. Það er ss búið að kyngja niður snjó hérna í allan dag, umferðin mjög hæg en samt alveg brjálað að gera hjá Gunnari þannig að hann komst ekki fyrr heim úr vinnunni. En þetta hefst allt saman. Mamma og pabbi koma síðan á morgun og hjálpa okkur með restina, þau verða jú að hafa eitthvað að gera:) Ég er síðan búin að þræla tengdó út hérna í þrifum og er mest allt að verða búið við verðum snögg að klára restina.
En þessi íbúð sem við fengum er alveg æðisleg og það besta er að hún er á jarðhæð:) ég var alveg komin með nóg af því að þramma með barnið og innkaupapokana upp á 4.hæð. Síðan er líka smá grasflötur fyrir utan þannig að við getum setið í sólbaði í allt sumar. Bara yndislegt.
Mánudagur 18. janúar 2010 / 16:39 / Píla 31.12.93 - 16.01.10
Jæja þá er elsku Píla okkar farin. Hún lést af slysförum á laugardaginn. Litla greyið, ekki alveg eins og maður hefði viljað að hún færi. En hún var orðin gömul þrátt fyrir að vera alltaf ung í anda. Hún var alveg frábær hundur og bara nánast eins og systir okkar, hún var það stór hluti af lífi okkar. Hennar er sárt saknað. Mér þykir verst að geta ekki farið norður og kvatt hana með fjölskyldunni í kvöld en það verður bara að bíða þangaði til ég fer næst norður. Það verður gerður smá minningarreitur um hana í garðinum í Ásveginum þar sem við getum minnst hennar.
Hérna er hún í berjamó á Karlsá.
Hérna stendur hún á tröppunum á Karlsá að horfa út fjörðinn og finnur sumarilminn í lofti.

Elsku Píla mín, takk fyrir félagsskapinn öll þessi ár. Þú varst alveg yndislegur hundur og góður vinur.
Miðvikudagur 30. desember 2009 / 17:34 / Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
já nú er þetta viðburðaríka ár senn á enda! Án efa það sem stendur hæst á þessu ári er fæðing sonar míns. Þrátt fyrir erfiða fæðingu þá er þetta ein besta upplifun sem ég hef lent í, hefði ekki viljað hafa þetta neitt öðruvísi og er hann algjör gullmoli þessi elska.
---
Þetta verður nú samt bara á styttri nótunum núna - geri ráð fyrir að meiri tími fari í að skrifa nokkur orð á bloggsíðuna hans Ragnars Núma en þessa en aldrei að vita nema ég komi með einhverjar færslur hérna.
---
Ég vil bara nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum allt gamalt og gott og vona að allir hafi það sem allra best.
0