Laugardagur 12. júlí 2008 / 21:49 / einn eftirmiðdagur í júlí

ég og bóndinn tókum okkur frí eftir hádegi á fimmtudag og fórum í bíltúr í blíðviðrinu. Ferðinni var heitið að Skógarfossi og Seljalandsfossi. Veðrið var mun betra hjá Seljalandsfossi - einhver skýjasúld var við skógarfoss en það er víst ekkert svo óalgengt!

Síðan grilluðum við okkur hamborgara og pylsur á tjaldsvæðinu á Hvolsvelli og héldum síðan í kvöldhressingu til Grétu mágkonu og Jóhannesar en þau voru á Flúðum á ferðalagi. Hægt er að sjá nokkrar myndir úr ferðinni hér.

baddy / 3

Miðvikudagur 25. júní 2008 / 16:41 / Kjaramál

Þar sem kjarabarátta okkar hjúkrunarfræðinga er í hámarki núna og yfirvinnubann á næsta leyti langaði mig að deila með ykkur hérna smá vangaveltum.
---
Ég var að skoða íbúðir á mbl.is og gera útreikninga þar og eins og mér reiknast þá er kostnaðurinn við húsnæðisrekstur um 200þús á mánuði með öllu. Ég sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur með 4 ára háskólanám, svo ég tali nú ekki um allt það nám sem ég var í áður í framhaldsskóla, þá eru grunnlaun mín 226þús fyrir skatt. Jú inn í þetta á eftir að reiknast vaktarálag þar sem ég verð á þrískiptum vöktum svona þegar líða tekur á sumarið, en á móti kemur að það á eftir að taka af mér í skatt.
---
Þetta sýnir mér að ég á ca 26þús krónur í afgang af laununum mínum, ef við gerum ráð fyrir að vaktarálagið fari í skattinn, og þá á eftir að borga þetta blessaða bensín og eitthvað verð ég að eiga í mig og á. Stundum skil ég ekki afhverju ég var að fara í þetta nám, og afhverju það er ekki betur metið í þjóðfélaginu. En vinnan er áhugaverð og sem er plús en það borgar ekki reikningana, hvað þá LÍN þegar það kemur!! Hvað á maður að gera??!!
---
Mér finnst skammarlegt að stjórnvöld skuli ekki gera meira í málunum, þau virðast hunsa algjörlega niðurstöður atkvæðagreiðslunnar um yfirvinnubann, hjúkrunarfræðingar eru greinilega ásáttir við sýn kjör og það sem þeim hefur verið boðið. Þetta er alveg óásættanlegt.
Ekki vildi ég verða lasin á næstunni og þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda! Úfff

baddy / 8

Þriðjudagur 24. júní 2008 / 18:04 / algjörar dúllur

Ég, Rebekka, Gunni og lubbulína kíktum í heimsókn til Gústa og fjölskyldu í morgun. Ég bara verð að deila með ykkur mynd af krúttunum.. svo sæt:)

DSC_0386_resize.JPG
Síbrosandi Gústason og Lubbulína Gunnarsdóttir

(P.s Rebekka eftir að hafa skoðað þessar örfáu myndir sem ég tók þá finnst mér mamma þín eiga nokkuð mikið í dúllunni þinni!)

baddy / 0

Mánudagur 26. maí 2008 / 10:36 / JÆJA!!!

jæja það lengjast alltaf pásurnar mínar! hehe

Ég er búin að vera í góðu yfirlæti í borginni hjá honum Gunnari mínum og fjölskyldu hans. Við erum að verða búin að koma okkur ágætlega fyrir hérna og mér líst mjög vel á þetta allt saman.
Það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðustu vikur - já ég tala í fleirtölu!!!
Eitt föstudagskvöld fyrir nokkru síðan bauð Gréta mágkona mér í kvennareið og Erla (skásystir Gunnars :)) kom með okkur og um 130 aðrar kvennsur úr reiðfélaginu Fákur sem staðsett er í Víðidalnum.


IMG_0609_resize.JPG
Ég á Geisla, voða ljúfur og góður fákur

IMG_0617_resize.JPG
jújú ég var ekki kona meðal hesta-kvenna nema vera með smá dreitil í hönd.

Að sjálfsögðu þurftum við að styðja okkar fólk í Eurovision og var því haldin smá gleði hérna í Víðilundinum. Fámennt en mjög svo góðmennt og alveg þrususkemmtilegt kvöld.


IMG_0665_resize.JPG
það var sko sungið og dansað...


IMG_0633_resize.JPG
hérna erum við Erla að taka lagið "hvar ertu nú" og létum sko gula hanskann ekki vanta, Jóhannes sá um að taka viðlagið.


En eftir dágott frí í borginni og starf í nýrri vinnu - bruna-/lýta og HNE (háls-, nef og eyru) deildinni, héldum við skötuhjúin norður á land í útskriftina mína. Jújú ég var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur:D


DSC_0100_a_resize.jpg
stórglæsilegar bekkjarsystur hér á ferð, ég veit ekki hvort kjóllinn minn sést en hann er sko sérsaumaður af mér og ástu:)


DSC_0161_resize.JPG
síðan kemur ein mynd af okkur nesó-gellunum


Um kvöldið var ég með grill fyrir systkyni og nána vini. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt kvöld og ég vil þakka öllum kærlega fyrir mig:)
Nú tekur bara alvaran við, kvöldvakt í kvöld og vinna alla helgina:D

ein mynd hérna í lokinn af okkur skötuhjúunum.
DSC_0130_resize.JPG

baddy / 5

Föstudagur 09. maí 2008 / 16:27 / hin langþráða stund runnin upp

Lokaritgerðin okkar var sótt í prentun í hádeginu í dag og við Andrea drifum okkur upp á barnadeild til Sísíar þar sem hún er í verknámi og við skrifuðum þar undir öll 7 eintökin. Síðan brunuðum við drean með allt heila klabbið upp í skóla og skiluðum til Láru skrifstofustjóra heilbrigðisdeildar. Það voru nú heldur blendnar tilfinningar þegar sú stund rann upp að við þyrftu að láta ritgerðirnar af hendi. Vorum heldur tregar til að slepptum að lokum takinu:)
Ótrúlegt að þessu sé að ljúka. Mér finnst svo stutt síðan ég var að byrja í þessu námi en samt eitthvað svo langt og ég trúi ekki að þetta sé búið og ég sé að fara að útskrifast! við eigum reyndar eftir að halda kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar í lokaritgerðinni og það verður föstudaginn 30.maí en það er ekkert til að stress sig yfir. Ég er bara ekki enn að trúa að þetta sé búið:)

baddy / 7

Fimmtudagur 08. maí 2008 / 00:49 / nýjar myndir og fleira

Ég er búin að vera að leika mér svolítið með nikon D80 vélina mína (svona síðan ég fór að geta loftað henni eftir viðbeinsbrotið) og ég er svo ástfangin. Það er svo gaman að fikta - ég er nú reyndar ekki orðin nógu dugleg við það ennþá en þetta kemur smám saman. Ég var að setja nokkrar myndir inn á myndasafnið mitt svona ef ykkur langar að kíkja.
---
Annars þá er bara allt í rólegheitunum hérna. Líf mitt einkennist af bið þessa dagana, ég er alltaf að bíða eftir einhverju og er bara að dangla mér á daginn. Biðin eftir skilum skilum á heildaryfirlestri frá leiðbeinanda var á enda í dag. Þetta var ss síðasti lesturinn hjá leiðbeinanda fyrir lokaskil. Það voru nú mjög fáar athugasemdir þannig að við vorum ekki lengi að yfirfara þetta og nú erum við að bíða eftir að Björn sé búinn að lesa yfir málfræðina og þá er bara allt klárt í prentun. Við erum að vonast til að ná að henda þessu í prentun fyrir helgi og helst fá þetta tilbaka á föstudaginn rétt fyrir lokun því eins og svo oft áður þá ætlum við Andrea að skella okkur suður á sunnudaginn. Held að það sé að verða hefði hjá okkur að fara alltaf saman suður á vorinn þegar skólinn er búinn - skella togga í græjurnar og syngja með - klikkar aldrei.
---
Ég hef orðið mikið vör við frönsku herþoturnar hérna og mér stendur nú ekkert allt of mikið á sama. Þvílíki hávaðinn í þeim og ég get ekki sagt að ég upplifi verndartilfinningu af því að sjá þær þarna í loftinu. Mér verður reyndar bara hugsað til þeirra landa þar sem stríð ríkir og hversu hræðileg tilfinning það hlýtur að vera að heyra í svona vél og vita ekki hvort hún sé að koma með næstu sprengju eða ekki. Mér finnst þetta svo óhugnalegt. Mér verður illt við tilhugsunina um það hversu grimmur þessi heimur er og er oft mjög þakklát fyrir að hafa fæðst á Íslandi og eiga svona góða fjölskyldu og vini. En þessar herþotur sem eru á sveimi minna mann á að þrátt fyrir að við búum á afskekktri eyju út á ballarhafi þá erum við jafngott skotmark og hvert annað land!

baddy / 1

Mánudagur 05. maí 2008 / 14:36 / fréttir!

Jæja það er nú langt síðan ég hef dritað niður orðum hérna. Kannski er mál til komið huhh! Við skvísurnar í lokaverkefnahópnum erum bara búnar að vera að dunda okkur í verkefninu.

Tókum okkur rúma viku í frí og ég kíkti suður til míns heittelskaða og við fórum í fataskápaleiðangur og festum kaup á einum fataskáp og einni kommóðu – ágætis kaup þar. Ég ætla síðan að flytja suður eftir lokaskil á ritgerðinni og vera hjá honum Gunnari mínum. Gréta mágkona og Jóhannes ætla að vera svo góð að skjóta yfir okkur skjólshúsi eitthvað fram á veturinn, jafnvel vorið – allt eftir því hvernig lánamálin fara í landinu.
---
Síðan fékk ég mér eitt stykki vinnu í sumar. Ég mun því verja sumrinu í 80% vinnu á bruna og lýtalækningadeildinni í Fossvoginum. Ég er voðalega spennt fyrir því. Og ef ég verð áfram spennt þá get ég fengið að vinna þar áfram.
---
Ég nýtti mér þjóðargjöfina í gær og keypti mér 3 bækur. Eina matjurtabók þannig að ég og Gréta getum spreytt okkur í matjurtaræktun, uppskriftarbók með kjúklingaréttum og bók um teygjur svo ég geti nú teygt á eftir garðvinnuna og kjúklingaátið.
---
Núna þurfum við bara að leggja lokahönd á ritgerðina. Hún er núna í yfirlestri hjá bæði kennaranum og Birni, fyrrverandi tengdapabba Hönnu sys, hann ætlar að fara yfir málfræðina fyrir okkur. Við gerum því ráð fyrir að skila henni á tilsettum tíma. Bara ljúft.
---
En ég ætla að skreppa eitthvert og reyna að gera eitthvað. Það er sól úti núna- um að gera að nýta sér það.

baddy / 5

© 2001-2007 Dagny Reykjalin